Edda Snorra Sturlusonar geymir bestu lýsingar sem við eigum af ásatrú.
Í þessari bók heldur Iðunn Steinsdóttir áfram að endursegja Snorra Eddu fyrir börn. Lífið í Ásgarði - gullnnar töflur í grasi er önnur bókin af þremur og er sjálfstætt framhald bókarinnar Óðinn og bræður hans. Lýst er lífinu í Ásgarði, klækjum Loka og afkvæmum hans, viskubrunninum, smíði virkisveggjarins og ragnarökum. Bókin er prýdd fjölda litmynda. Þriðja bókin er Æsir á fljúgandi ferð – Hefnd Loka.