Hrafninn er fimmta bókin í lestrarflokknum Milli himins og jarðar. Í bókinni er reynt að höfða til áhugamála og hugðarefna nemenda og er hún ætluð þeim sem hafa náð undirstöðuatriðum lestrar. Spurningar neðst á blaðsíðunum eru hugsaðar til þess að staldra við og ræða það sem lesið var um. Aftast í bókinni eru nokkur verkefni sem nemendur geta unnið í samvinnu eða sjálfstætt.