Smábókunum er skipt í fimm þyngdarflokka og er Númi í 5. flokki.
Smábók ætluð til lestrarþjálfunar og til að minna á mikilvæg atriðií tengslum við slysavarnir s.s. notkun á öryggisbúnaði við hjólreiðar og á hjólabretti sem og að minna a neyðarnúmerið 112. Orðaval í bókinni tekur ekki alfarið mið af því að hún er ætluð byrjendum í lestri. Því er mikilvægt að kennarar og foreldrar styðji val við lesandann eða lesi jafnvel fyrir hann á köflum.
Númi er grallari. Honum finnst gaman að hjóla og renna sér á bretti. Auðvitað alltaf með hjálm og hlífar. Númi og konurnar þrjár er skreytt litríkum og fjörlegum myndum sem styðja vel við glettinn textann. Bókin er gefin út í samstarfi við Slysavarnarfélagið Landsbjörg sem kostaði gerð mynd og texta.