Myndlýsingar á myndum í bókinni PóGó og prumpið sem bjargaði heiminum. Hér er hægt að hlusta á lýsingu á myndum bókarinnar en Sjónstöð, þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu hefur unnið upphleyptar myndir með myndunum í bókinni sem blind og sjónskert börn fá sent um leið og spjöldin eru tilbúin.
Bókin PóGó og prumpið sem bjargaði heiminum fjallar um leiðangur geimverunnar PóGó til jarðar þar sem hún kynnist börnum með ýmsar fatlanir. Ævintýri PóGó veita nemendum innsýn í fjölbreytileika mannlífsins og er ætlað að fræða þau um ólíkar fatlanir, fordóma, staðalmyndir og mannréttindi. Markmiðið er að efla virðingu fyrir fjölbreytileika, örva samkennd og stuðla að gagnrýninni hugsun um eigin viðhorf. Með því að fylgja PóGó í gegnum skoplegar en umhugsunarverðar aðstæður læra nemendur að það er í góðu lagi að spyrja, læra og viðurkenna mistök.