Söguskinna er önnur bókin úr röð bóka sem eru einkum ætlaðar fyrir miðstig grunnskóla.
Í Söguskinnu fara lesendur í ferðalag um víðan völl. Textar bókarinnar eru fjölbreyttir og fróðlegir og bjóða upp á umræður og vangaveltur. Sagðar eru flökkusögur, gluggað í dagbækur, rýnt í umhverfi og náttúru, farið um framandi slóðir og fræðst um drauga og varúlfa.
Við val á textum og efni í bókina var fyrst og fremst haft í huga að efnistök væru fjölbreytt og næðu að fanga áhuga sem allra flestra nemenda. Textarnir eru úr ýmsum áttum og skrifaðir af rithöfundum, ljóðskáldum, blaðamönnum eða fræðimönnum.