1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Sproti 1a – Æfingahefti

Sproti 1a – Æfingahefti

  • Höfundur
  • Bjørnar Alseth, Henrik Kirkegaard og Mona Røsseland
  • Myndefni
  • Anna Tryti
  • Þýðing
  • Hanna Kristín Stefánsdóttir
  • Vörunúmer
  • 6174
  • Skólastig
  • Yngsta stig
  • Útgáfuár
  • 2008, 2011
  • Lengd
  • 64 bls.

Sproti 1a – æfingahefti er fyrsta bókin í flokki kennslubóka í stærðfræði fyrir yngsta- og miðstig grunnskóla. Í Sprota er lögð áhersla á margs konar kennsluaðferðir og misþung verkefni. Markmiðin eru skýr og hvert viðfangsefni tekið fyrir á fjölbreyttan hátt. Textar eru stuttir og auðlesnir.
Sproti 1a er mjög myndræn bók ætluð yngstu nemendunum. Unnið er með samlagningu og frádrátt, form, mynstur og mælingar með tölum frá1–10.

Ný útgáfa 2011

Nú verða tvær bækur Sproti 1a og Sproti 1b fyrir fyrsta aldursárið þar sem áður var einungis ein. Nokkrar tilfærslur eru á efnisþáttum auk þess sem bætt er við nýju efni.
Helstu breytingar í 1a og 1b:
• meiri vinna með tölur á talnabilinu 1–10
• áhersla á talnabilið 10–20 (talnaskilningur, röð talna, talnalína, sætisgildi og peningar)
• meiri áhersla á notkun talnalínu
• aukin áhersla á samlagningu og frádrátt og ólíkar leiðir að lausnum


Tengdar vörur