Bókin er einungis aðgengileg rafræn á læstu svæði kennara.
Sproti 1b er önnur útgáfa kennsluleiðbeininga með samnefndu námsefni. Sprotaefnið býður upp á sveigjanleika í stærðfræðikennslu og möguleika á að nota mismunandi kennsluaðferðir. Efnið hentar nemendum á mismunandi getustigi til að öðlast undirstöðufærni í stærðfræði.
Efni kennarabókarinnar fylgir efnisþáttum nemendaefnisins. Fjallað er um tölurnar 7–10, mælingar, plús og mínus, tölurnar 0–20, form og myndir. Aftast í kennarabókinni eru verkefnablöð til ljósritunar.