Vefurinn Verður heimurinn betri? styður við efni samnefndrar bókar.
Á vefnum má finna fjölbreytt og gagnvirkt efni fyrir skóla, kennara og aðra áhugasama. Efnið byggir á nýjustu tölfræðilegri framsetningu um þróun heimsins og heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun og er ætlað til að vekja til umræða, fræða og hvetja til virkni meðal ungs fólks. Á vefnum má finna myndbönd og fræðsluspjöld.
Efnið var unnið af Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Útgáfa og prentun bókarinnar var studd af utanríkisráðuneytinu, en gerð vefsins var styrkt af mennta- og barnamálaráðuneytinu.
