Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla á mat á hæfni og framförum nemenda að vera reglubundinn þáttur í skólastarfi. Megintilgangur námsmats er að kanna stöðu nemenda, nota niðurstöður til að leiðbeina þeim um námið og hvernig þeir geti náð markmiðum þess.
Með námsmati er fylgst með því hvernig nemendum tekst að ná almennum hæfniviðmiðum aðalnámskrár, stuðlað að námshvatningu, nemendur örvaðir til framfara og metið hvaða aðstoð þeir þurfa. Námsmat miðar að því að afla vitneskju um árangur skólastarfsins og hvernig einstaklingum og hópum gengur að ná settum markmiðum. Námsmat á að veita foreldrum og nemendum þeirra, kennurum, viðtökuskólum og skólayfirvöldum upplýsingar um námsgengi sem má hafa að leiðarljósi við skipulagningu náms.
Hæfniviðmiðin eru sá grundvöllur sem kennsluhættir og námsmat byggjast á. Mikilvægt er að námsmat nái til allra færniþátta og endurspegli hæfniviðmiðin og viðfangsefni námsins. Á grundvelli hæfniviðmiða velja kennarar og nemendur kennsluaðferðir, námsefni og matsaðferðir og skal gera grein fyrir þeim í skólanámskrá viðkomandi skóla. Kennsla, nám og námsmat mynda eina heild. Námsmatið er hluti af náms- og kennsluferlinu og skipulagt sem mest í samræmi við námskrá, hæfniviðmið og viðfangsefni nemenda.
Mikilvægt er að námsmatið sé fjölbreytt og gefi heildstæða mynd af hæfni nemandans. Það þarf að vera sanngjarnt og gefa nemandanum tækifæri til að sýna þekkingu, leikni og hæfni. Leggja skal áherslu á leiðsagnarmat sem byggist á því að nemendur velti reglulega fyrir sér námi sínu með kennurum sínum til að nálgast eigin markmið og ákveða hvert skal stefna. Með slíku mati fá bæði kennarar og nemendur reglulega upplýsingar um framvindu náms og hvort kennslan hafi skilað árangri. Mikilvægt er að nemendur fái vitneskju um forsendur námsmats, til hvers er ætlast af þeim, hvernig verði metið og veita þeim lýsandi endurgjöf um það sem þarf að bæta.
Birt hefur verið auglýsing um breytingu á aðalnámskrá grunnskóla og greinasviðum með aðalnámskrá grunnskóla.