Stika er námsefnisflokkur í stærðfræði fyrir miðstig grunnskóla. Efnið er framhald af flokknum Sproti sem er fyrir yngsta stig. Stika býður upp á sveigjanleika í stærðfræðikennslunni með því að gefa kennurum möguleika á að nota mismunandi kennsluaðferðir. Markmið hvers kafla eru nákvæmlega tilgreind.
Námsefnið í nemendabókinni er sett fram með það í huga að hægt sé að aðlaga kennsluna nemendum með mismikla getu í faginu. kaflarnir hefjast á hlutbundinni umfjöllun sem þróast síðan smám saman yfir í óhlutbundnari texta og verkefni. Með hverjum kafla eru próf og æfingasíður, notkun þeirra er útskýrð í kaflanum Um Stiku í kennarabókinni.
Nemendabók og æfingahefti eru margnota bækur og ætlast til að nemendur noti reiknishefti.
Efnisþættir í Stiku 1a eru:
- Heilar tölur
- Tölfræði
- Tugabrot
- Rúmfræði