Víkingaöldin 800 – 1050 er þemahefti um fólk í Norður-Evrópu á víkingaöld. Meðal viðfangsefna bókarinnar eru fornleifar, víkingar og víkingaferðir. Í bókinni er fjallað um daglegt líf fólks í norrænum samfélögum, híbýli þess, störf, siði og trú. Fjallað er um áhrif víkingaaldar allt til nútíma.