Rafræn útgáfa að bókinni Danski draugurinn sem er í flokknum Sestu og lestu. Í þessari útgáfu er textinn lesinn.
Flokkurinn Sestu og lestu er flokkur lestrabóka ætlaður yngsta stigi og miðstigi grunnskóla. Efnið er ætlað börnum á yngsta- og miðstigi grunnskólans sem hafa náð tökum á undirstöðuatriðum lestar. Því er ætlað að vekja með börnum lestrargleði og áhuga og kynna fyrir þeim mismunandi framsetningu texta. Aftast í bókinni eru nokkur viðfangsefni sem ætlast er til að börnin vinni saman og ræði.