Fingrafimi er vefur sem kennir fingrasetningu. Á vefnum eru samtals 12 æfingar í heimalyklunum, e, h, i,o, b, n , r, o, brodd- og hástöfum. Í hverri æfingu eru sex til fimmtán verkefni. Nemendur eru minntir á rétta líkamsstöðu og að horfa ekki á lyklaborðið. Leiðbeiningar með öllum verkefnum eru lesnar upp. Á vefnum eru kennsluleiðbeiningar og eins er hægt að prenta út skráningarblöð fyrir nemendur.
Árið 2017 var vefurinn endurgerður frá grunni og gerður spjaldtölvuvænn.