Rómanska-Ameríka er þemahefti í sögu fyrir mið- og unglingastig og er í bókaflokknum Sögugáttin.
Bókin fjallar stuttlega um líf fólks í Mið- og Suður-Ameríku frá landnámi, fram til ársins 1500. Stiklað er á stóru um lifnaðarhætti og trúarbrögð þriggja stærstu samfélaganna á svæðinu, Inka, Azteka og Maya. Einnig er hernám Evrópumanna skoðað og áhrif þess á innfædda.
Í bókinni eru fjölbreytt verkefni sem hugsuð eru sem æfing í frekari heimildavinnu.