Sitthvað á sveimi er í flokki leshefta fyrir mið- og unglingastig grunnskóla. Efnið tekur mið af áhugamálum nemenda. Í heftinu eru frásagnir af draugum frá ýmsum tímum og lesendur velta því fyrir sér hvernig slíkar sögur urðu til. Aftast eru orðskýringar og fjölbreytt verkefni.