Kortabók fyrir grunnskóla frá 2012 er að verða búin á lager og verður ekki endurprentuð. Örfá eintök eru eftir fyrir þá sem vilja tryggja sér eintak. Útgáfan 2012 var fimmta útgáfa bókarinnar og var hún unnin í samstarfi við bókaútgáfuna Liber í Svíþjóð. Liber hefur nú ákveðið að hætta útgáfu kortabóka og Menntamálastofnun hefur ákveðið að gera slíkt hið sama.
Kort eru orðin aðgengileg á vef og þar er auðvelt að nálgast fjölbreytt kort. Má til dæmis nefna Google Earth og Google maps.
Ýmislegt námsefni er í boði hjá Menntamálastofnun sem snýr að vinnu við kort og kortalæsi. Hér er vakin athygli á eftirfarandi námsefni er tengist þessu tvennu:
Námsefni fyrir yngsta stig
- Könnum kortin 1 og 2
 - Komdu og skoðaðu landakort – áhersla á kortalestur og kortagerð
 
Námsefni fyrir mið- og unglingastig
- Heimsreisa – Google Earth – Verkefni og kennsluleiðbeiningar fyrir mið- og unglingastig:
 - Ísland, hér búum við – Í fyrsta hlutanum er fjallað um kort og kortalestur
 - Kortavefsjá af Íslandi – Upplýsingar um ár, eyjar, fjöll, fossa, jökla, vötn, þéttbýli og þjóðgarða ásamt myndum
 - Vefrallý um Ísland – Verkefni til útprentunar þar sem nemendur vinna verkefni m.a. í tengslum við vefinn Kortavefsjá af Íslandi með hjálp netsins
 - Lönd heimsins
 - Um víða veröld – heimsálfur
 - Um víða veröld – Jörðin
 - Landafræði tónlistar
 
