Halló heimur kennsluleiðbeiningar fylgja námsefninu Halló heimur sem er kjarnaefni í samfélags- og náttúrugreinum fyrir yngsta stig grunnskóla. Þeim er skipt upp í 9 kafla líkt og nemendabókinni og fylgja þær bókinni opnu fyrir opnu. Í kennsluleiðbeiningum eru:
• upplýsingar um tengingu námsefnisins við hæfniviðmið og lykilhæfni aðalnámskrár, grunnþætti menntunar og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
• markmið kaflans, hugmyndir að kveikju og umræðupunktum með opnumynd kaflans
• fróðleikur um efni hvers kafla, áhugaverða tengla og útskýringar á hugtökum kaflans
• greinargóðar útfærslur af verkefnum sem hentugt er að vinna í tengslum við efni kaflans
• málshættir, orðatiltæki og söngtextar sem tengjast efni kaflans
• lýsingar á verkefnum í verkefnabók og markmið þeirra
Kennsluleiðbeinigar eru ekki fullfrágengnar og í vinnslu ennþá