Námsefnið Skrift – Tölustafir er ætlað nemendum sem eru að byrja í skriftarnámi en bókina má nota samhliða Skrift 1a og Skrift 1b. Kenndir eru tveir tölustafir á hverri opnu og stafdráttur sýndur í stafahúsi.
Auk skriftarþjálfunar eru margvíslegar þjálfunaræfingar í námsefninu, s.s. sporun, draga línu á milli punkta, æfingar sem efla talnaskilning o.fl.
Prentuð útgáfa af bókinni mun koma út í janúar.