Málfræðibókin mín - 2. hefti er samin fyrir börn með annað móðurmál en íslensku sem hafa náð allgóðri færni í íslensku máli. hún er einkum ætluð nemendum á miðstigi og unglingastigi grunnskólans og er önnur í röð þriggja hefta.
Efni bókarinnar byggist á fyrri samnenfndri bók og er nauðsynlegt að nemendur hafi farið yfir efni hennar áður en þeir takast á við þessa bók.
Námsbókinni er m.a. ætlað að uppfylla þau markmið í kaflanum ,,íslenska sem annað tungumál" í Aðalnámskrá grunnskóla - íslenska, þar sem segir að nemendur eigi að vera færir um að stunda nám i íslenskum grunnskólum og öðlast ,,munnlega og skriflega færni í íslensku sem gerir þeim kleift að stunda nám við eðlilega framvindu til jafns við jafnaldra sína."