1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Lesrún 2 - Kennsluleiðbeiningar

Lesrún 2 - Kennsluleiðbeiningar

Opna vöru
  • Höfundur
  • Anna Þóra Jónsdóttir, Kristjana Pálsdóttir
  • Vörunúmer
  • 2856
  • Skólastig
  • Yngsta stig
  • Útgáfuár
  • 2020

Kennsluleiðbeiningar með Lesrúnu 2, námsefni ætlað 4. bekk með sérstaka áherslu á lesskilning. Í efninu koma fram hugmyndir um hvernig hægt er að útvíkka efnisþættina í bókinni og kveikja áhuga nemenda á efninu. Mikið er lagt upp úr vinnu með orðaforða áður en textinn sjálfur er lesinn, hugað að bakgrunnsþekkingu, ályktun um merkingu óþekktra orða og bent á leiðir til að greina aðalatriði í texta. Í leiðbeiningunum eru einnig settar fram hugmyndir að ritunar- og málfræðiverkefnum í tengslum við textana í bókinni. Áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, s.s. samræður, hópavinnu, sköpun o.fl.


Tengdar vörur