1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Líkami minn tilheyrir mér 4 - Það er aldrei þér að kenna

Líkami minn tilheyrir mér 4 - Það er aldrei þér að kenna

  • Höfundur
  • Bifrost og Barnaheill
  • Upplestur
  • Ingvar Þór Björnsson / RUV
  • Myndefni
  • Bifrost
  • Þýðing
  • Skopus þýðingastofa
  • Vörunúmer
  • 45178
  • Skólastig
  • Leikskóli
  • Yngsta stig
  • Útgáfuár
  • 2023

Kynferðislegt ofbeldi á börnum á sér stað oftar og nær okkur en við höldum og er mjög skaðlegt.
Öll börn eiga rétt á vernd og þurfa að geta leitað til fullorðinna sem þau treysta og sem geta rætt
við þau um kynferðisofbeldi, að það er ólöglegt og hvernig þau geta fengið hjálp. 

„Líkami minn tilheyrir mér“ eru teiknimyndir í fjórum þáttum þar sem fjallað er um líkamann, mörk og kynferðisofbeldi.  Með myndunum fylgja samtalsspjöld og kennsluleiðbeiningar sem hugsaðar eru til að vinna með börnum á leikskóla.  Einnig fylgja efninu kennsluleiðbeiningar fyrir 1. - 4. bekk   Efninu fylgir sniðmát af bréfi ef skólar vilja senda forráðamönnnum upplýsingar um fræðsluna.

 


Tengdar vörur