Kynferðislegt ofbeldi á börnum á sér stað oftar og nær okkur en við höldum og er mjög skaðlegt.
Öll börn eiga rétt á vernd og þurfa að geta leitað til fullorðinna sem þau treysta og sem geta rætt
við þau um kynferðisofbeldi, að það er ólöglegt og hvernig þau geta fengið hjálp.
„Líkami minn tilheyrir mér“ eru teiknimyndir í fjórum þáttum þar sem fjallað er um líkamann, mörk og kynferðisofbeldi.
Samtalsspjöld fylgja myndunum og eru þau hugsuð fyrir leikskóla en einnig gætu þau nýst vel fyrir eldri nemendur. Hér eru kennsluleiðbeiningar sem hugsaðar eru við vinnu með samtalsspjöldum.
Einnig fylgir efninu sniðmát af bréfi ef skólar vilja senda forráðamönnnum upplýsinga um fræðsluna.