Mannslíkaminn er í flokknum Litróf Náttúrunnar sem er námsefni í náttúrufræði fyrir unglingastig. Bókin er í sjö köflum og fjallar um gerð og starfsemi líkama mannsins. Í upphafi er fjallað um frumur, síðan er umfjöllun um einstök líffæri og líffærakerfi og greint frá gerð þeirra og helstu verkefnum. Kennarabók og gagnvirk verkefni fylgja með efninu. Prófabanki er á læstu svæði kennara.