Náttúrulega 2 er kjarnaefni fyrir miðstig og er önnur kennslubókin af þremur í Náttúrulega bókaflokknum. Í bókaflokknum er fjallað um allar undirgreinar náttúrugreina. Bókinni mun fylgja verkefnabók, kennsluleiðbeiningar, gagnvirkur spurningabanki, námsmatsbanki og fleira.
Í námsefninu er fjallað um plönturíkið og sveppi og taugakerfi, meltingakerfi og hreinsikerfi mannslíkamans. Þá er einnig farið í ýmsa krafta í náttúrunni, eðlismassa og sólkerfi, höf, vötn og nemendur kynntir fyrir efnafræði.
Uppfærð útgáfa af rafbók með hreyfimyndum, myndbútum, orðskýringum og fleira mun koma á vefinn í september.