Ritrún 2 er annað heftið í röð þriggja hefta í íslensku fyrir yngsta stig grunnskólans.
Viðfangsefnin í bókinni eru miðuð við börn sem eru farin að lesa sér til skilnings. Verkefnin eru m.a til að auka orðaforða þeirra, styrkja málkennd og kynna þeim grunnatriði í málfræði og ritun.
Ritrúnarbókunum er ætlað að mæta markmiðum aðalnámskrár grunnskóla um að nemendur öðlist jákvætt viðhorf til móðurmálsins, kynnist byrjunaratriðum í málfræði og geti skrifað skýrt og læsilega við lok 4. námsárs.