Ritrún 3 er síðasta heftið heftið í röð þriggja hefta í íslensku fyrir yngsta stig grunnskóla.
Viðfangsefnin í bókinni eru miðuð við nemendur sem hafa náð nokkrum tökum á lestri og ritun. Í bókinni kynnast þau grunnatriðum í málfræði, greinarmerkjum og nokkrum stafsetningarreglum.
Ritrúnarbókunum er ætlað að mæta markmiðum aðalnámskrár grunnskóla um að nemendur öðlist jákvætt viðhorf til móðurmálsins, kynnist byrjunaratriðum í málfræði og geti skrifað skýrt og læsilega við lok 4. námsárs.