1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Sjálfbærni - vefur

Sjálfbærni - vefur

Opna vöru
  • Höfundur
  • Brynhildur Bjarnadóttir, Brynhildur Heiðard. Ómarsdóttir, Elizabeth Bik Yee Lay, Eva Harðardóttir og Eyrún María Rúnarsdóttir, Guðrún Schmidt, Kristrún María Heiðberg, Linda Hrönn Þórisdóttir, Ólafur Páll Jónsson, Sævar Helgi Bragason, Vigdís Fríða Þorvaldsdóttir, Þóra Jónsdóttir og Þórður Kristinsson. Höfundar verkefna eru Björn Kristinsson, Helgi Reyr Auðarson Guðmundsson og Hildur Arna Håkansson. Höfundur texta í myndböndum Guðni Líndal BenediktssonFormáli Guðni Th. Jóhannesson
  • Upplestur
  • Árni Beinteinn Árnason
  • Myndefni
  • Aron Freyr Heimisson og Lára Garðarsdóttir með hreyfimyndir.
  • Vörunúmer
  • 2879
  • Skólastig
  • Framhaldsskóli
  • Unglingastig
  • Útgáfuár
  • 2023

Á sjálfbærnivefnum má finna myndbönd, texta og verkefni fyrir nemendur og gæðakannanir fyrir nemendur, skóla og samfélög.

Sjálfbærni miðar að því að fræða nemendur á unglingastigi um sjálfbærni á hinum ýmsum sviðum samfélagsins. Farið er í hvernig sjálfbærni er mikilvæg fyrir mannkynið í heild og farið í grundvallarfræðslu um samfélag og náttúru og í framhaldi rætt um hvernig nemendur geta gripið til aðgerða og haft áhrif á nærumhverfi sitt og samfélag sitt í heild.

Námsefnið skiptist í sjö hluta. Fyrsti hluti fjallar um menningarlega fjölbreytni og umburðarlyndi, annar um jafnrétti kynja og þriðji um mannréttindi. Í fjórða hluta er farið í friðsamlega menningu, í fimmta hluta loftslagsbreytingar, í sjötta hluta sjálfbærni í náttúrunni og sjöundi hluti fjallar um sjálfbæra neyslu og framleiðslu.

Námsefnið samanstendur af rafbók, myndböndum og greinargóðum verkefnabanka með 70 verkefnum en auk þess fylgir námsefninu gæðakannanir þar sem nemendur geta metið stöðu sína og síns nærumhverfis í fyrrnefndum flokkum.


Tengdar vörur