Í kennsluleiðbeiningum er farið yfir hugtök sem kennarar þurfa að hafa á valdi sínu í skriftarkennslunni og í yfirlitstöflu má sjá hvernig tengja á hvern og einn bókstaf ásamt sýnidæmum. Einnig er lögð fram tillaga að kennsluáætlun þar sem t.d. er farið yfir markmið, innlögn, hjálpargögn og námsmat.
Í leiðbeiningum við Skrift 2a eru tillögur að innlögn með hverri stafafjölskyldu, fyrst án tenginga en síðan eru tengingar lagðar inn. Í Skrift 2b er einnig lögð áhersla á tengingar en auk þess leitast við að samþætta skrift, stafsetningu og ritun í gegnum merkingarbær orð og texta.
