1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Sögueyjan 3

Sögueyjan 3

  • Höfundur
  • Leifur Reynisson
  • Myndefni
  • Teikningar: Þórey Mjallhvít Ómarsdóttir
  • Vörunúmer
  • 7028
  • Skólastig
  • Unglingastig
  • Útgáfuár
  • 2011
  • Lengd
  • 120 bls.

Sögueyjan 3 er kennslubók í Íslandssögu áranna 1900–2010  og er þriðja og síðasta bókin í bókaflokknum Sögueyjan sem Menntamálastofnun gefur út. Ritröðin spannar Íslandssöguna frá landnámi til okkar tíma.

Meginmarkmið bókarinnar er að varpa ljósi á íslenskt samfélag frá aldamótum 1900 til okkar tíma. Annars vegar er gerð grein fyrir þróun íslensks samfélags í réttri tímaröð. Hins vegar eru tilteknir þættir samfélagsins teknir fyrir og þeir útskýrðir.

Efnið er fléttað saman með þeim hætti að nemendur fái tilfinningu fyrir framvindu sögunnar um leið og þeir átti sig á samhengi tiltekinna samfélagsþátta. Aðalatriðið er að veita skýra innsýn í samfélag tímabilsins þar sem nemendur geta áttað sig á lífsskilyrðum almennings og ólíku hlutskipti landsmanna varðandi auð og völd.


Tengdar vörur