Rafbók með lestrarbókinni Stuð á stærðfræðisýningu. Í Stuð á stærðfræðisýningu er fjallað um tvívíð form í rúmfræði. Með áhugaverðum og skemmtilegum söguþræði er leitast við að draga börninn inn í söguna og þar með einnig inn í stærðfræðina. Bókin Stuð á stærðfræðisýningu sýnir fram á hvernig hægt er að nota stærðfræði í hversdagslegum aðstæðum auk þess að auka lestrarfærni.
Bókin getur nýst í stærðfræðikennslu og sem lestrarþjálfunarefni.