Verkefnahefti um tvívíð form, orðaforða rúmfræðinnar og lesskilning. Verkefnin eru byggð á bókinni Stuð á stærðfræðisýningu en geta þó staðið ein og sér. Þetta er verkefnahefti tvö af tveimur heftum. Heftin eru mjög áþekk en þyngdarstigsmunur er á þeim.
Verkefnin eru fjölbreytt og tengjast öll rúmfræði og tvívíðum formum á einhvern hátt.
Fléttað er inn verkefnum er tengjast íslensku eins og að ríma og orðasúpu.
Verkefnaheftið er eingöngu gefið út sem útprentanlegt efni hér á vef Menntamálastofnunar.