Kennslubók í landafræði fyrir unglingastig grunnskóla. Í bókinni er fjallað um efnahagslega og félagslega þróun ólíkra svæða heimsins og það hvernig maðurinn byggir og nýtir jörðina. Bókin skiptist í þrjá hluta.
- Í fyrsta hluta er tekið fyrir hvernig maðurinn byggir jörðina og nýtir sér hana til búsetu.
- Í öðrum hluta er viðfangsefnið heimsálfurnar, landslag þeirra, náttúrufar og auðlindir og helstu einkenni.
- Í þriðja hluta er fjallað um auðlindirnar í hafinu.