1. Forsíða
  2. Skólastig
  3. Framhaldsfræðsla
  4. Námskrár í framhaldsfræðslu

Námskrár í framhaldsfræðslu

Námskrár í framhaldsfræðslu 

Framhaldsfræðsla er skilgreind sem hvers konar nám, úrræði og ráðgjöf sem er ætlað að mæta þörfum einstaklinga með stutta formlega skólagöngu að baki og er ekki skipulagt á grundvelli laga um framhaldsskóla eða háskóla. Fræðsluaðilar í framhaldsfræðslu eru þeir sem hafa viðurkenningu á grundvelli laga um framhaldsfræðslu nr. 27/2010. 

Mennta- og menningarmálaráðuneyti birtir viðmið um gerð námskráa í framhaldsfræðslu en þær lýsa námstilboði sem samanstendur af einum eða fleiri námsþáttum og felur í sér að lágmarki 40 klukkustunda vinnu námsmanns, í og utan kennslustunda.

Fræðsluaðilar, eða aðrir fagaðilar sem ráðuneyti telur hæfa, geta sótt um vottun námskráa/ námslýsinga til Menntamálastofnunar. Námskrár og námsþættir eru skráðir af fræðsluaðila í námskrárgrunn ráðuneytisins og úr þeim grunni sendir fræðsluaðili formlega umsókn um vottun. 

Leiðbeiningar um gerð umsókna vegna viðurkenningar fræðsluaðila