Kennsluleiðbeiningar með Flökkuskinnu eru samansettar með það í huga að greiða leið kennara að textum bókarinnar og verkefnum. Fjölbreytni í kennsluháttum er lykilatriði. Verkefnin í bókinni og viðbótarverkefni í kennsluleiðbeiningum eru hugsuð sem ákveðinn grunnur og geta kennarar nýtt þau eftir hentugleika en eru jafnframt hvattir til að spinna við eftir sínum háttum, vilja og stemmningu hverju sinni.