Eðlisfræði 3 er í flokki kennslubóka í náttúrugreinum, sem kallast Litróf náttúrunnar og er ætlað unglingastigi grunnskóla.
Bókin skiptist í fjóra meginkafla sem hefst á opnu með stuttum inngangi og myndum, markmiðum kaflans og nánara efnisyfirliti. Hver kafli greinist svo í nokkra undirkafla. Fyrsti kafli er um kjarneðlisfræði. Í öðrum kafla er inntakið orkuöflun mannkyns. Þriðji kafli fjallar um sólkerfið og sá fjórði um alheiminn.
Við lok hvers undirkafla er sjálfspróf úr efni kaflans ásamt nokkrum grunnhugtökum