9. 1 Uppbygging prófanna
Í samræmdum könnunarprófum er miðað við matsviðmið aðalnámskrár grunnskóla. Prófin eru yfirgripsmikil og er þeim ætlað að meta stöðu nemenda út frá matsviðmiðum á hverju aldursstigi. Staða nemenda gagnvart matsviðmiðum aðalnámskrár er breytileg. Þess vegna byggjast könnunarprófin á prófatriðum sem gefa nemendum með mismikla færni tækifæri til að sýna hvað í þeim býr, atriði sem spanna fjölbreytileg viðfangsefni og eru ólík að þyngd. Í prófunum verða prófatriði, sem reyna mismikið á fjölbreytta færni nemenda og henta nemendum með ólíka getu.
9.2 Íslenska
Samræmt könnunarpróf í íslensku metur getu og hæfni nemanda til að skilja texta sem hann les og metur færni hans í notkun íslensks máls. Prófið reynir á skilning nemandans á atriðum er fram koma í textanum, bæði með beinum og óbeinum hætti. Einnig reynir á getu hans til að greina framvindu textans og hlutverk afmarkaðra hluta hans, finna markmið höfundar með textanum og skoðanir hans, greina stílbrigði og eiginleika textans. Jafnframt reynir á skilning nemandans á málinu, bæði með verkefnum tengdum textum og stökum prófatriðum.
Uppbygging samræmds könnunarprófs í íslensku:
Námsþáttur |
vægi í heildareinkunn |
fjöldi prófatriða |
||||
Árgangur |
4. |
7. |
9. |
4. |
7. |
9. |
Lesskilningur |
70% |
70% |
70% |
40 |
40 |
45 |
Málnotkun |
30% |
30% |
30% |
10 |
15 |
15-20 |
9.3 Stærðfræði
Samræmt könnunarpróf í stærðfræði metur getu og hæfni nemanda til að kljást við og leysa viðfangsefni á sviði almennra reikningsaðferða, hlutfalla og prósenta, mynsturs og algebru og rúmfræði í ólíkum viðfangsefnum. Verkefnin miðast við hæfni eftir aldursstigi nemenda. Verkefnin eru ýmist fjölval eða opin og reyna á að nemendur sýni vald á grunnatriðum, geti unnið með flóknari stærðfræðileg viðfangsefni og hafi gagnrýnt hugarfar gagnvart viðfangsefnum stærðfræðinnar.
Uppbygging samræmds könnunarprófs í stærðfræði:
Námsþáttur |
vægi í heildareinkunn |
fjöldi prófatriða |
||||
Árgangur |
4. |
7. |
9. |
4. |
7. |
9. |
Algebra |
- |
- |
25% |
- |
- |
12 |
Hlutföll og prósentur |
- |
- |
25% |
- |
- |
12 |
Reikningur og aðgerðir |
50% |
50% |
25% |
16 |
20 |
12 |
Rúmfræði og mælingar |
25% |
25% |
25% |
8 |
10 |
12 |
Tölur og talnaskilningur |
25% |
25% |
- |
8 |
10 |
- |
9.4 Enska
Samræmt könnunarpróf í ensku metur getu og hæfni nemanda til að skilja ritaðan texta á ensku. Prófið reynir á skilning nemandans á efnisatriðum textans, bæði með beinum og óbeinum hætti. Einnig reynir á getu hans til að greina framvindu textans og hlutverk afmarkaðra hluta hans og þær skoðanir sem fram koma í textanum. Jafnframt mun reyna á málnotkun og orðskilning í prófinu.
Uppbygging samræmds könnunarprófs í ensku í 9. bekk:
Námsþáttur |
vægi í heildareinkunn |
fjöldi prófatriða |
Lesskilningur |
70% |
50 |
Málnotkun |
30% |
15-20 |