Ritrún1 er fyrsta heftið í röð þriggja hefta í íslensku fyrir yngsta stig grunnskóla.
Viðfangsefnin í bókinni eru úr reynsluheimi barnanna og miðuð við nemendur sem eru að stíga sín fyrstu skref í lestri, stafsetningu og ritun. Rík áhersla er á að auka á orðaforða þeirra.
Ritrúnarbókunum er ætlað að mæta markmiðum aðalnámskrár grunnskóla um að nemendur öðlist jákvætt viðhorf til móðurmálsins, kynnist byrjunaratriðum í málfræði og geti skrifað skýrt og læsilega við lok 4. námsárs.