Bragfræði fyrir unglingastig grunnskóla
Íslenskur kveðskapur á sér sögu sem rekja má allt aftur fyrir landnám. Hinn forni kveðskapararfur byggist á bragreglum sem í dag eru hvergi til í lifandi máli nema hér á Íslandi.
Í þessari bók er að finna helstu bragreglurnar. Bókin skiptist í tólf kafla sem hver um sig fjallar um ákveðinn þátt bragfræðinnar á skýran og einfaldan máta. Höfundur bókarinnar er doktor í íslenskum fræðum og starfar sem aðjunkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.