Námsefnið Kæra dagbók 3 er samið fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku. Einkum er miðað við nemendur á aldrinum 10–14 ára sem hafa farið í gegnum fyrri bækurnar í flokknum eða hliðstætt efni.
Námsefninu er ætlað að uppfylla m.a. þau markmið aðalnámsskrár grunnskóla, fyrir íslensku sem annað tungumál, að nemendi geti
- skilið einföld skilaboð
- notað íslensku til að tjá tilfinningar sínar og sagt frá hugsunum sínum og reynslu
- tekið þátt í samtali á íslensku og náð athygli viðmælenda
- notað íslensku til að taka þátt í leikjum og daglegum samskiptum við börn og fullorðna
- tekið þátt í umræðum í skólaum um námsefni og annað sem er á dagskrá
- spurt og beðið um upplýsingar, m.a. á einstökum orðum og orðatiltækjum
- borið fram helstu málhljóð í íslensku og talað með nokkuð skýrum framburði
- lesið og skilið einfalda texta sér til gagns og ánægju
- skrifað stutta, einfalda frásögn, lýsingu eða skilaboð
Aftast í bókinni eru útskýringar á uppbyggingu hennar.