Dagleg hreyfing er börnum og unglingum nauðsynleg fyrir eðlilegan vöxt, þroska og andlega vellíðan. Hreyfing við hæfi á að fela í sér skemmtilegan leik. Það þjálfar hreyfifærni, eykur hreysti, eykur félagslega færni og eflir sjálfstraust.
Í námsefnismöppunni Hreyfistund og kennslubókinni Líf og leikur má finna æfingar sem almennir kennarar geta notað í skólastofum og samkomusal skóla og jafnvel samþætt öðrum greinum.
Einungis eru eftir örfá eintök af möppunni Hreyfistund. Fyrstur pantar fyrstur fær því efnið verður ekki framleitt aftur.