- 85% nýnema fengu inni í þeim skólum sem þeir sóttu um í fyrsta vali.
- Í heild bárust flestar umsóknir til Tækniskólans.
- Meðalaldur nemenda í starfsnámi er umtalsvert hærri en nemenda í bóknámi.
- Fleiri karlkyns nemendur eru skráðir í framhaldsskólanám en kvenkyns nemendur.
Menntamálastofnun hefur tekið saman helstu tölur um nemendur framhaldsskólanna á haustönn 2021. Um tvær greiningar er að ræða og fjallar önnur um umsóknir og innritun á haustönn. Heildarfjöldi umsókna var 8.899, þar af voru nýnemaumsóknir 4.214.
Hin greiningin fjallar um samsetningu framhaldsskólanema í heild. Í henni má bera saman nemendasamsetningu síðustu þriggja anna.
Greiningarnar sýna m.a. skiptingu nemenda eftir námsleiðum, kynjum, aldri, einingafjölda og landshlutum.
Upplýsingarnar birtast nú í fyrsta skipti með gagnvirkum hætti í Power BI. Það gerir lesendum kleift að sía gögnin miðað við tilteknar forsendur og rýna í þau með markvissari hætti en áður.