1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Líkaminn minn tilheyrir mér 1 - Líkaminn minn

Líkaminn minn tilheyrir mér 1 - Líkaminn minn

  • Höfundur
  • Bifrost og Barnaheill
  • Upplestur
  • Ingvar Þór Björnsson / RUV
  • Myndefni
  • Bifrost
  • Þýðing
  • Skopus þýðingastofa
  • Vörunúmer
  • 45175
  • Skólastig
  • Leikskóli
  • Yngsta stig
  • Útgáfuár
  • 2023

Kynferðislegt ofbeldi á börnum á sér stað oftar og nær okkur en við höldum og er mjög skaðlegt.
Öll börn eiga rétt á vernd og þurfa að geta leitað til fullorðinna sem þau treysta og sem geta rætt
við þau um kynferðisofbeldi, að það er ólöglegt og hvernig þau geta fengið hjálp. 

„Líkami minn tilheyrir mér“ eru teiknimyndir í fjórum þáttum þar sem fjallað er um líkamann, mörk og kynferðisofbeldi. Með myndunum fylgja samtalsspjöld og kennsluleiðbeiningar sem hugsaðar eru til að vinna með börnum á leikskóla. Einnig fylgja efninu kennsluleiðbeiningar fyrir 1. - 4. bekk. Efninu fylgir sniðmát af bréfi ef skólar vilja senda forsjáraðilum upplýsingar um fræðsluna. 

VÁ – viðvörun
Til að samtalið við börnin verði sem gagnlegast þurfa kennarar að kynna sér efnið mjög vel til að geta lagað það að því vinnulagi sem virkar best fyrir hvern barnahóp. 

Kennari ákveður fyrir hvaða aldurshóp efnið hentar.
Góður undirbúningur er lykilatriði þegar halda á samverustund með fræðslu um kynferðisofbeldi, til að tryggja að bæði fullorðnir og börn upplifi að þau séu örugg. Við mælum því með að starfsfólk lesi allar leiðbeiningarnar vandlega áður en myndirnar eru sýndar.

 


Tengdar vörur