Kynferðislegt ofbeldi á börnum á sér stað oftar og nær okkur en við höldum og er mjög skaðlegt.
Öll börn eiga rétt á vernd og þurfa að geta leitað til fullorðinna sem þau treysta og sem geta rætt
við þau um kynferðisofbeldi, að það er ólöglegt og hvernig þau geta fengið hjálp.
„Líkami minn tilheyrir mér“ eru teiknimyndir í fjórum þáttum þar sem fjallað er um líkamann, mörk og kynferðisofbeldi.
Hér má finna kennsluleiðbeiningar sem hugsaðar eru til að vinna með börnum í yngstu bekkjum grunnskóla. Einnig fylgir efninu sniðmát af bréfi ef skólar vilja senda forráðamönnnum upplýsinga um fræðsluna