Komdu og skoðaðu eldgos er nú komin út sem táknmálsbók en hún er einkum ætluð nemendum á yngsta stigi. Í henni er fjallað um orsakir eldgosa og jarðskjalfta og viðbrögð við þeim, uppbyggingu jarðar, jarðskorpufleka og eldgos á Íslandi.
Við gerð bókarinnar var tekið mið af áherslum námskrár í náttúrufræði og samfélagsgreinum. Kennsluleiðbeiningar má finna á vefnum með Komdu og skoðaðu flokknum.
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra sá um þýðinguna yfir á íslenskt táknmál. Táknari er Árný Guðmundsdóttir.
Aðrar bækur sem hafa verið þýddar yfir á táknmál:
Snorra saga
Komdu og skoðaðu himingeiminn
Komdu og skoðaðu íslenska þjóðhætti
Komdu og skoðaðu bílinn
Margt skrýtið hjá Gunnari
Draugasaga Dóra litla