1. Forsíða
  2. Komdu og skoðaðu eldgos á táknmáli

Komdu og skoðaðu eldgos á táknmáli

Komdu og skoðaðu eldgos er nú komin út sem táknmálsbók en hún er einkum ætluð nemendum á yngsta stigi. Í henni er fjallað um orsakir eldgosa og jarðskjalfta og viðbrögð við þeim, uppbyggingu jarðar, jarðskorpufleka og eldgos á Íslandi. 

Við gerð bókarinnar var tekið mið af áherslum námskrár í náttúrufræði og samfélagsgreinum. Kennsluleiðbeiningar má finna á vefnum með Komdu og skoðaðu flokknum. 

Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra sá um þýðinguna yfir á íslenskt táknmál. Táknari er Árný Guðmundsdóttir. 

Aðrar bækur sem hafa verið þýddar yfir á táknmál:

Snorra saga 
Komdu og skoðaðu himingeiminn
Komdu og skoðaðu íslenska þjóðhætti
Komdu og skoðaðu bílinn
Margt skrýtið hjá Gunnari
Draugasaga Dóra litla

skrifað 27. JAN. 2020.