Við minnum á að skilafrestur til að senda inn ljóð er til og með 6. desember.
Í tilefni af degi íslenskrar tungu 16. nóvember efndi Menntamálastofnun til ljóðasamkeppni grunnskólanema, Ljóðaflóð, í samvinnu við KrakkaRúv. Nemendur eru hvattir til að virkja sköpunarkraftinn og senda inn ljóð á því ljóðformi sem þeir kjósa. Það geta verið bundin ljóð og óbundin, ferskeytlur, limrur, hækur, tönkur, myndljóð o.fl., sannkallað ljóðaflóð!
Dómnefnd velur bestu ljóðin á yngsta stigi, mið- og unglingastigi og fá vinningshafar afhent bókaverðlaun og viðurkenningarskjal. Úrslit keppninnar verða tilkynnt í byrjun janúar 2022.
Við hvetjum kennara til að undirbúa nemendur til þátttöku; lesa ljóð og ræða upplifun, innihald og mismunandi ljóðform. Á Ritunarvefnum er margs konar fróðleikur um ljóð ásamt skemmtilegum fræðslu- og hvatningarmyndböndum um skapandi skrif. Stuttar og hnitmiðaðar bragfræðileiðbeiningar til kennara má nálgast á safnvefnum Dagur íslenskrar tungu og einnig bendum við á bækurnar Bragfræði og Limrur fyrir unglingastig grunnskóla.
Nemendur geta annaðhvort samið sitt eigið ljóð eða haft samvinnu við aðra. Þá væri t.d. upplagt að bekkurinn skoðaði í sameiningu þau ljóð sem senda á í keppnina en vanda þarf til verka hvað varðar innihald, frágang og uppsetningu. Umfjöllunarefni ljóðanna er frjálst, þau geta verið um allt það sem brennur á þátttakendum.
Skilafrestur er til og með 6. desember 2021.
Senda má ljóðin í keppnina rafrænt á netfangið [email protected] eða með bréfpósti:
Menntamálastofnun
Ljóðaflóð
B.t. Elínar Lilju Jónasdóttur
Víkurhvarfi 3
203 Kópavogi
Hér má sjá úrslit Ljóðaflóðs árið 2020.