1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Náttúra til framtíðar (rafbók)

Náttúra til framtíðar (rafbók)

Opna vöru
  • Höfundur
  • Rannveig Magnúsdóttir
  • Myndefni
  • Ýmsir
  • Vörunúmer
  • 40318
  • Skólastig
  • Framhaldsskóli
  • Unglingastig
  • Útgáfuár
  • 2022
  • Lengd
  • 98 bls.

Náttúra til framtíðar fjallar um ýmisleg umhverfisvandamál og hvað hægt er að gera til að finna lausnir á þeim. Vistheimt, eða endurheimt vistkerfa, er ein slík lausn en það er ferli sem hjálpar náttúrunni að lækna sig sjálfa.

Bókin samanstendur af fjórum köflum. Fyrsti kafli er almenn fræðsla um náttúruna og meðal annars fjallað um umhverfi, vistkerfi, loftslagsmál, gróðureyðingu og vistheimt. Næstu þrír kaflar innihalda verkefni fyrir nemendur sem hægt er að vinna í lengri og styttri tíma, allt frá einni kennslustund í alla skólagönguna. Verkefnin reyna á ólíka styrkleika og áhugasvið og ættu að henta flestum nemendum. Í öðrum kafla eru frásagnarverkefni þar sem nemendur setja sig í ákveðnar aðstæður og leita heimilda til að finna rökstudd svör. Þriðji kafli samanstendur af ýmsum hópverkefnum sem bæði er hægt að vinna í náttúrunni og í skólastofu. Fjórði og síðasti kafli inniheldur tilraunaverkefni þar sem nemendur geta notað vísindalega aðferð til að meta og mæla gæði nærumhverfi síns. Með verkefnunum læra nemendur hvernig þeir geta metið stöðu náttúrunnar og hvernig hægt er að finna lausnir og aðgerðir til að aðstoða náttúruna til framtíðar.

 

Náttúra til framtíðar - Rannveig Magnúsdóttir from Menntamálastofnun on Vimeo.


Tengdar vörur