Náttúrulega 2 verkefnabók fylgir námsefninu Náttúrulega 2 sem er kjarnaefni í náttúrugreinum fyrir miðstig. Í bókaflokknum er fjallað um allar undirgreinar náttúrugreina.
Í Náttúrulega 2 er fjallað um plönturíkið og sveppi, taugakerfi, meltingakerfi og hreinsikerfi mannslíkamans. Þá er einnig farið í ýmsa krafta í náttúrunni, eðlismassa og sólkerfi, höf, vötn og nemendur kynntir fyrir efnafræði. Verkefnin eru fjölbreytt, allt frá því að vera innfyllingarverkefni í að vera tilraunir og athuganir en sérstök áhersla er lögð á hugtakanotkun.
Lausnir eru á læstu svæði kennara.