1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Sérðu það sem ég sé? Bókmenntir fyrir efri bekki grunnskóla

Sérðu það sem ég sé? Bókmenntir fyrir efri bekki grunnskóla

  • Höfundur
  • Anna Steinunn Valdimarsdóttir og Ingibjörg Sigtryggsdóttir
  • Myndefni
  • Rán Flygenring
  • Vörunúmer
  • 7088
  • Skólastig
  • Unglingastig
  • Útgáfuár
  • 2015
  • Lengd
  • 136 bls.

Sérðu það sem ég sé? er fyrsta bókin af þremur í flokki kennslubóka í bókmenntum fyrir efri bekki grunnskóla. 

Í þessari bók fá nemendur tækifæri til að skyggnast inn í þær bókmenntir sem skrifaðar hafa verið fyrir börn og unglinga í yfir hundrað ár. 

Bókin skiptist í þrjá meginhluta þar sem fjallað er um ákveðin tímabil í bókmenntasögunni frá aldamótunum 1800 og fram á okkar daga. 

  • Í fyrsta hlutanum er efni frá seinni hluta 18. aldar til 1969.
  • Annar hlutinn tekur fyrir raunsæisbókmenntir frá sjöunda áratug seinustu aldar til aldamótanna 2000.
  • Í þriðja hluta er efni tengt fantasíum og óræðum heimi. 

Kennsluleiðbeiningar er að finna á læstu svæði kennara.


Tengdar vörur