Bókin Spor 2 er ætluð til kennslu sjö ára barna í lífsleikni. Helstu markmið efnisins eru að efla tilfinningaþroska og samskiptahæfni nemenda. Trúðarnir Trilla og Trilli fylgja lesandanum í gegnum bókina en gert er ráð fyrir að fullorðinn lesi hana með barninu. Tillögur um 32 kennslustundir eru í sérstökum kennsluleiðbeiningum sem fylgja efninu. Viðfangsefni kennslustunda eru mjög fjölbreytt og taka mið af kenningu um fjölgreindir.